Um mig

Ég heiti Dóra Sif Egilsdóttir. Ég er íþróttafræðingur og er á loka önninni í MEd námi í heilsuþjálfun og kennslu í Háskólanum í Reykjavík. Ég starfa sem íþróttakennari í grunnskóla og þjálfa yngri flokka í handbolta.

Hreyfing og íþróttir hafa ávallt verið stór hluti af mínu lífi. Í gegnum íþróttir og hreyfingu hef ég upplifað gleði, mótlæti, kynnst mínum nánustu vinum og lært hluti sem ég hef getað nýtt mér í lífinu. Íþróttir hafa kennt mér skipulag og þrautseigju sem hefur hjálpað mér að ná árangri í því sem ég tek mér fyrir hendur. Ég á fjögur börn og það er mér mjög mikilvægt að börnin mín
upplifi hreyfingu á jákvæðan hátt og að þau fái tækifæri til þess að upplifa fjölbreytta hreyfingu og stunda íþróttir sem hentar þeim. Hvatning, umhverfi og stuðningur í hreyfingu og íþróttum er eitt af þeim mikilvægu hlutverkum sem við foreldrar verðum að veita börnunum okkar strax frá unga aldri.

Ég hef góða reynslu af því að vinna með börnum og þá sérstaklega hreyfingu barna. Ég starfaði á leikskóla í 12 ár, þar sem ég oftar en ekki sá um hreyfistarf á leikskólanum. Einnig hef ég starfað á ungbarnaleikskóla sem fagstjóri í hreyfingu, séð um íþróttaskóla fyrir 1-3 ára börn, haldið námskeið tengt hreyfingu og íþróttum barna og starfað sem þjálfari yngri flokka í handbolta frá árinu 2018.

Hafa samband

Hafðu samband ef þú hefur spurningar eða vilt fá frekari upplýsingar um verkefnið.