Hugmyndir að æfingum

Myndir með hugmyndum að æfingum fyrir börn 0-1 árs.

Gefa barninu tækifæri til þess að hreyfa sig, kanna umhverfið og prófa sig áfram.

Magalega

Mælt er með að ungabörn séu daglega í magalegu þegar þau eru vakandi og undir eftirliti.

Viðmið: Um 10 mínútur á dag fyrir hvern mánuð barnsins, upp að um 60 mínútum á dag. Magalegu er best að dreifa yfir daginn í stuttar lotur. Allar útfærslur teljast, t.d. á gólfi, á bringu foreldris eða í fanginu.

Ungbarnasund

Ungbarnasund er leikur og hreyfing í vatni fyrir börn frá um 3 mánaða til 2 ára, þar sem barn og foreldri eru saman í sundi undir leiðsögn kennara.

Vatnið auðveldar hreyfingar og styður við hreyfiþroska, vellíðan og öryggi barnsins. Ungbarnasund getur haft jákvæð áhrif á svefn, matarlyst og skap og styrkir jafnframt tengsl foreldra og barns.

Markmiðið er að barnið upplifi öryggi og gleði í vatni og byggi upp jákvæða og örugga upplifun sem nýtist til framtíðar.

Myndir með hugmyndum að æfingum fyrir börn 1-2 ára.

Fyrir börn sem ekki eru byrjuð að ganga er gott að bjóða upp á búnað sem býður barninu að skríða upp í mismunandi hæðir eins og litla stiga eða gólfpúða. 

Í þessari æfingu eru handklæði upprúlluð og börnin ganga eftir hæl í tá og æfa jafnvægið sitt. 

Hægt er að nota stiga til þess að æfa víxlhreyfingu í fjórfótaskriði og efla hreyfifærni barnsins.

Myndbönd með hugmyndum að æfingum fyrir börn 3-4 ára.