Skiptir skipulagt hreyfistarf máli í leikskólanum?

Skipulagt hreyfistarf í leikskólum hefur á síðustu árum fengið aukna athygli í umræðu um velferð, þroska og jöfn tækifæri barna. Í umræðu sem skapaðist meðal meistaranáms nemenda í námskeiðinu Umhverfisþættir í siðfræði og íþróttum kom m.a. fram að verulegur munur er á því hvaða tækifæri leikskólabörn fá til markvissrar hreyfingar. Leikskólar eru með ólíkar stefnur, aðstöðu og áherslur […]